Skólalíf
Aðrir en ekki síður mikilvægir!!
18.03.2008 21:54:41 / saranda

Ótrúlega fyndið myndband!!! Algjört möst að lesa textann :D

Þetta myndband er svo fyndið að ég var ánægð með að hafa ekki þurft á klósettið áður en ég horfði á það :) Það er algjört möst að lesa textann neðst á skjánum!! Hér er linkurinn:

http://www.youtube.com/watch?v=ZA1NoOOoaNw


Endilega kommentið og látið mig vita hvað ykkur finnst um myndbandið og hvort nemendur í Lyfjafræði séu nokkuð einir um að finnast myndbandið drepfyndið :lol::lol::lol::haha:

Með kærri kveðju,
Saranda

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 00:42:36 / saranda

Gleðilegt nýtt ár

Sæll öll :) Nú er klukkan korter í eitt að nóttu til og ég er orðin svolítið þreytt. Ég ætla samt að skella inn lítilli færslu þar sem ég var búin að lofa ykkur lesendum að bæta upp letirassbloggfílinginn minn frá því í fyrra. Út af þreytu tek ég ekki ábyrgð á neinum prentvillum, stafsetningavillum, málfræðivillum eða öllum þessum villum sem kunna að koma upp í þessum texta. Ætla einnig að taka upp punktakerfið hennar Ragnheiðar, vona að þér sé sama Ragnheiður :) 1. Nú er nýtt ár gengið í garð og ég held að mér lítist bara ágætlega á það. Ég hef allavegana ekki lent í neinum hremmingum þessa heilu 13 daga :) 2. Þann 5.janúar voru við Óli búin að vera saman í eitt og hálft ár. 3. Ég komst að því í síðustu viku að ég náði öllum prófunum sem er náttúrulega ekkert annað en gott :) 4. Skólinn byrjaði í síðustu viku og er ég núþegar búin að lesa einn kafla í lífrænni efnafræði 2 og gera öll dæmin sem sett voru fyrir, þrjá kafla í eðlislyfjafræði, er byrjuð á fyrsta kaflanum í efnagreiningartækni og er búin að vera að lesa þónokkuð í lífefnafræðiheftinu. Á þó eftir að byrja á lífefnafræðibókinni. Verklegt byrjar svo í næstu viku og verð ég þá tvisvar til þrisvar í viku í verklegu. 5. Ég borðaði mjög góðan mat yfir hátíðirnar (veit ekki af hverju ég set þetta inn). 6. Ragnheiður, Tinna og ég ætlum að hittast annað kvöld. Ætlum út að borða og svo á myndina Nanny´s Dairies (man ekki hvernig maður stafsetur dagbók á ensku, sko þreytan farin að segja til sín). 7. Fyrir þá sem ekki vita þá tók ég mér hlé á síðustu vorönn og er því komin með nýjan bekk. Ég get nú ekki annað sagt en að mér lítist bara vel á þau. Á náttúrulega eftir að kynnast bekkjarfélögunum betur, en eins og maður segir á góðu enskunni: "they make a good first impression". 8. Heima hjá fjölskyldunni minni gengur allt vel. Það sem hefur gerst nýtt er að Hannes byrjaði í MR í haust og Arna í skóla. Allir í fjölskyldunni minni eru að standa sig mjög vel og ég er svo stollt af þeim. Ætla ekki að hafa þetta lengra. Óska ykkur alls hins góða :) Bæjó, Saranda.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 09:47:41 / saranda

Vissi þetta ekki...

Ég var inni á mbl.is í morgun og sá blogg konu sem heitir Vigdís Ísafold og ákvað að stela smá texta af síðunni hennar þar sem hún var að tala um að maður mætti deila þessum upplýsingum með öllum heiminum ;) . Þessar upplýsingar eru nefnilega þeim eiginleikum gæddar að það vita MJÖG fáir það sem stendur í þessum texta. Here it goes... 

 The  Worlds Best Kept Auto Secret 

Quick  question, what side of your car is your gas tank? If you are anything like me,  you probably can't remember right away. My solution is to uncomfortably stick  my head out the window, strain my neck and look. If you don't do this in your  own car you definitely have done it in a borrowed or rental car. 

Well  ladies and gentlemen, I'm going to share with you my little secret so you will  no longer look like Ace Ventura on your way to the gas station or put your  neck at risk of discomfort or injury. 

If you look at your gas gauge,  you will see a small icon of a gas pump. The handle of the gas pump will  extend out on either the left or right side of the pump. If your tank is on  the left, the handle will be on the left. If your tank is on the right, the  handle will be on the right (see photo below). It is that simple! 
I don't  know how you feel right now but when I found out this morning I felt cheated!  

Why don't the dealers share such important information with car buyers? I  don't understand why this isn't in the drivers ed manual? I don't get why any mechanic I have ever been too or know has even thought of mentioning this to  me? The only possible explanation can be that all these people probably don't  even know!

Hér er slóðin að myndinni:

http://bryndisisfold.blog.is/blog/bryndisisfold/image/380638/

 Go out  and share the worlds best kept auto secret 
with  your friends as this information is way too 
important to be kept  secret !!!

Ég var að tékka á dagsetningu síðustu færslu og sá að það er næstum ár síðan ég bloggaði síðast, afsakið letirassbloggfílinginn minn, reyni að bæta eitthvað úr þessu á komandi ári :S .

Af mér er samt ekki mikið að frétta. Aðallega skólinn...borða...sofa..., svona eins og flestir námsmenn þessa dagana. Við Óli erum nú búin að vera saman í tæpt eitt og hálft ár og búum saman í íbúðinni hans. Ég er í óðaönn að reyna að gera jólalegt heima fyrir í lestrarhléunum mínum og er búin að setja upp marglita jólaseríu í eldhúsgluggann og jóladúk á stofuborðið ;) Ég setti meira að segja bastkörfu með appelsínum sem ég var búin að stinga í með negulnöglum á stofuborðið, þannig að jólalyktin er öll að koma :haha: . Ég kláraði síðan að skrifa jólakortin í nóv og er búin að kaupa næstum allar jólagjafirnar, þannig að þegar ég verð búin í prófum 19.des. þá get ég bara slappað af og verið í FRÍI!! :) Ég er nefnilega búin að finna það út að ég verð í rúmlega 20 daga jólafríi og ætla sko að njóta þess og sleppa því að vinna þessi jól. :)

En núna verð ég að halda áfram að læra,

over and out,

Kveðja, Saranda.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 08:43:19 / saranda

Alltaf að læra...

Úff... þá er það próf í lífrænni efnafræði í dag klukkan 13:30. Ég er búin að fara í tvö próf fyrir og eru það lífeðlisfræði II og sýkla- og veirufræði. Ég sit núna við skrifborðið og er að rifja upp allt sem ég hef verið að lesa áður. Þetta eru ekkert smá mikið af efnahvörfum, hvarfgöngum, hvarfefnum, hvötum og svo má lengi telja...úff. Ég vona bara að ég muni þetta allt þegar ég er komin í prófið.

En ég ætla að halda áfram að lesa. (Ég veit eiglega ekki af hverju maður er að skrifa blogg þegar maður hefur bara frá svona leiðinlegu að segja, en þetta fær þó að fjúka á síðuna fyrst ég er búin að skrifa þetta.)

Kveðja, Saranda.


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 14:30:26 / saranda

Sver það, litli rauður er köttur!!

Bíllinn minn fór í gang!!!! :haha:

Við Óli ákváðum að fara heim til mín í gærkvöldi og sækja startkapla sem við ætluðum að nota til að ákveða endanlega hvort litli rauður væri veikur eða alveg dáinn. Og viti menn, hann rauk bara í gang, ekkert vesen!! :haha: Það er alveg ótrúlegt hvað þessi bíll er skrítinn. Ég er bara farin að halda að hann sé köttur í dulargervi.... sem ætti þá að þýða að hann á heil 4-5 líf eftir ;)

Mig langaði bara til að deila þessu með ykkur blogglesendunum. Þarf að halda áfram að læra í lífrænni efnafræði.

Bæjó! ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 17:44:09 / saranda

Áts - dagur!! :o/

Hæ hæ

Um tólf leitið í dag ákvað ég að breyta um námsumhverfi með því að fara upp á þjóðarbókhlöðu. Þið námsmennirnir skiljið það ábyggilega hversu leiður maður getur orðið á að lesa of lengi á sama staðnum :S Þegar ég var búin að pakka öllum bókunum mínum fyrir lífræna efnafræði ofan í töskuna mína ásamt tölvunni minni og búin að útbúa nesti hélt ég út í bíl og startaði honum....brrrm....brrm...hann fór ekki í gang!! Bíllinn minn er DÁINN!!!! Ég er hrædd um að litli rauður sé alveg búinn að gefa upp öndina í þetta skiptið. Ég veit að ég hef sagt þetta áður en ég held að þetta sé í síðasta skiptið sem ég segi það. Ég er ekkert smá leið út af þessu ástandi þar sem mér þykir svo vænt um litla bílinn minn, er búin að eiga hann í heil 4 ár og hann er fyrsti og eini bíllinn sem ég hef átt!

Eftir að hafa syrgt bílinn minn um stund hringdi ég í Óla sæta og bað hann um að koma og skutla með upp á Þjóðarbókhlöðu. Ég ákvað að fara með honum mjóddina til að kaupa kartöflur á markaðnum sem er þar alltaf á föstudögum. Þegar ég hafði rétt stigið út úr bílnum steig ég á hálkublett og rann beint niður á hnén og svo á rassinn!! Vá hvað þetta var vont og ég er með stóra skeinu á öðru hnénu :(

Þessi dagur er sem sagt búinn að vera heldur betur EKKI góður og ég er ekki búin að ná að læra eins mikið og ég hefði viljað. En dagar eru misjafnir og maður verður bara að taka þeim eins og þeir koma.

Með kveðju,

Saranda.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 18:46:42 / saranda

Snjór er æðislegur!!

Sæl verið þið öll! ;)

Mikið voðalega er ég ánægð með að snjórinn sé kominn. Það var orðið nokkuð langt síðan hann heimsótti okkur Rvk-búana. Ég er bara leið yfir því að hafa ekki fengið að njóta hans betur í dag en þessa tvo æðislegu klukkutíma sem ég var úti í guðsgrænni náttúrunni. :haha: Í morgun ákvað ég sem sagt að henda letirassinum mínum út í göngutúr og varð heiðin fyrir ofan Rauðavatn fyrir valinu. Ég byrjaði á því að keyra heim til Völu frænku og sótti hundinn hennar Vask. Eftir stutt stopp hjá henni lá leiðin upp að Rauðavatni og blasti þar við okkur gríðarlegt snjómagn. Ég, sem hafði ekki beint búist við svona miklum snjó, og á Twingó í þokkabót :S , fékk smá sjokk. Eftir nokkra umhugsun ákvað ég samt að láta vaða (með það í huga að ef ég skyldi festa mig þá gæti ég alveg hringt í Gunna stjúppabba og beiðið hann um að koma að sækja mig 8) ) Ég brunaði áfram og.... viti menn.... Litli Rauður hafði það!!! Náttúrulega ekki við öðru að búast af Renault Twingo árg. 1994 :haha: Hann meira að segja hafði það líka til baka, sem ég var stórlega farin að efast um á þeim tíma.

Núna sit ég uppi í rúmi og er að lesa fyrir prófið í lífrænni efnafræði I sem verður 14. des. Við Óli erum svo að fara að passa systkini hans í kvöld.

Þarf að fara. Hafið það gott og gangi ykkur vel að læra, þið sem þurfið að vera að því :)

Bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2006 15:48:31 / saranda

Hæ hæ :)

Sæl verið þið öll! :)

Oj hvað ég er ekki að nenna að gera skýrslu í lífrænni efnafræði núna. Við vorum að athuga hvort efnanna bróm eða klór eiga auðveldara með að hvarfast við 2-bútanól með kjarnasæknu skiptihvarfi. Við mældum síðan brotstuðul lausnarinnar og reiknuðum út frá honum hlutfall 2-bromobútans og 2-chlorobútans í lausninni. Ekkert voðalega skemmtilegt. En maður verður að líta á björtu hliðarnar, maður lærir í þessu :)

Í gær fór ég ásamt verklega hópnum mínum í verklegri lífeðlisfræði í krossapróf og munnlega skýrslu úr æfingu í áreynslulífeðlisfræði. Ég var orðin alveg ofboðslega stressuð fyrir skýrslunni þar sem ég hafði legið andvaka næstum alla nóttina áður (veit ekkert af hverju :S ;) og var orðin mjög hrædd um að geta ekki einbeitt mér mikið vegna þreytu. Þetta gekk samt allt rosa vel þegar á staðinn var komið og ég held að við fáum öll ágæta einkunn fyrir. Ég fékk allavegana 8 í krossaprófinu sem ætti að þykja ágætis einkunn í prófi í háskóla myndi ég halda.

En jæja, ég ætla að reyna að klára þessa skýrslu og baka svo gulrótarkökuna sem ég er búin að hlakka til að borða í allan dag :)

Hafið það gott yndin mín!

Með kveðju,

Saranda.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 17:00:58 / saranda

Hello yellow

Hæ hæ.

Mikið voðalega getur verið leiðinlegt að gera skýrslu í lífeðlisfræði. Við þurfum að gera þrjár svoleiðis á þessari önn og er þetta sú þriðja, sem betur fer. Við förum svo í krossapróf og munnlega skýrslu þar sem við verðum spurð spjörunum úr og er þá eins gott að kunna efnið vel! Æfing þessarar skýrslu var um áreynslulífeðlisfræði þar sem elskan hún Ragnheiður bauð sig fram í að vera tilrauninamanneskjan okkar. Hún þurfti að setja á sig forljóta "star wars grímu" sem var með tveimur rörum, annað til að anda inn og hitt til að anda út. Útöndunarloftið fór svo í eitthvað tæki sem mældi rúmmál útöndunarloftsins og svo styrk súrefnis og koldíoxíðs. Eftir að gríman hafði verið sett vel og vandlega á hana með ótal mörgum frönskum rennilásum, var tími til kominn að setjast á þrekhjólið. Hún þurfti svo að hjóla á því í langan tíma á 55hringjum/mín með hækkandi erfiðleikastigum. Ýmsir þættir í breyttu líkamsástandi hennar voru mældir, eins og t.d. blóðþrýstingur, hjartsláttartíðni, súrefnispúls og ótalmargt fleira. Auðvitað stóð hún sig svo eins og hetja, enda ekki við öðru að búast frá þessari frábæru manneskju ;)

Núna er ég að vinna minn hluta af skýrslunni og ætlum við hópfélagarnir svo að hittast í kvöld til að vinna meira í skýrslunni. Viðtalstíminn verður svo á mánudaginn.

Jæja, þarf að fara að læra aftur og fara svo að kíkja á bílinn minn þar sem hann fór ekki í gang þegar mamma var með hann í láni í dag.

Hafið það yndislegt og gangi ykkur vel í öllu sem þið takið ykkur fyrir hendur!

Með kveðju,

Saranda.


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 20:59:58 / saranda

Loksins kemur færsla! :)

Sæl verið þið öll! :)

Ég ákvað að skella inn færslu vegna mikils þrýstings frá utanaðkomandi aðilum...huhumm-Ragnheiður-huhumm..... ;)

Ég veit eigilega ekki hvað ég á að skrifa um, það er ekkert svo mikið að gerast í lífi mínu. En þó eitthvað. Ég er náttúrulega byrjuð aftur í skólanum og eru áfangarnir miklu skemmtilegri þessa önnina en þær síðustu. Ég er í lífeðlisfræði 2, lífrænni efnafræði 1, sýkla og veirufræði og línulegri algebru og tölfræði. LAN er reyndar ekkert svo skemmtileg þar sem ég kann svo lítið á tölvur og hún gengur bara út á að læra að láta risatölvureikniforrit sem heitir því einfalda nafni "R" reikna hina ýmsu hluti fyrir sig. En annars er skólinn ágætur, þegar ég nenni að mæta. Þarf að fara að taka mig á að vakna fyrr á morgnanna. Ragnheiður þú ert svo mikil dúlla að vera að reka á eftir mér.

Bekkurinn minn er að fara í sumarbústað á morgun og verðum þar fram á sunnudag. Verður ábyggilega skemmtilegt, eins og síðast.

Ég, Ragnheiður og Tinna erum byrjaðar í dansnámskeiði uppi í Kramhúsi þar sem við lærum karabíska dansa. Ég get ekki lýst því hvað það er skemmtilegt að læra að dansa svona og síðan er tónlistin alveg frábær! Ég mæli alveg eindregið með því að fólk skelli sér í svona. Maður kemst meira að segja einnig í form í leiðinni. Hvað gæti verið betra! :)

Jæja Ragnheiður, er þetta nóg í bili? ;)

Ég ætla að hafa þetta nóg í bili, bæjó! :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2006 13:51:59 / saranda

Fjóla Gerður Gunnarsdóttir skal hún heita!!

Jæja þá er hún Fjóla Gerður Gunnarsdóttir komin í heiminn. Hún fæddist í gær 22 mínútur í miðnætti. Mamma var ekki nema um 5 tíma að eiga hana. Ég óska mömmu og Gunna innilega til hamingju með þessa litlu dúllu!!


» 18 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 18:34:12 / saranda

Vinna og læra.

Sæl öll!

Sorry hvað ég er búin að vera ódugleg við að blogga, maður nennir bara svo sjaldan að skrifa blogg á sumrin, vonandi skiljiði mig. Aðalfréttinar af mér eru samt að núna er undirbúningur fyrir sumarprófið kominn á fullt. Er búin að taka mér átta daga frí í Vistor hf. og núna er það bara harkan sex. Var reyndar búin að lesa nokkuð af námsefninu fyrr í sumar þannig að þetta ætti ekki að vera allt of mikil lesning svona rétt fyrir prófið, sem betur fer.

Mamma er nú eins og stendur komin með fjóra í útvíkkun en hríðir samt ekki byrjaðar. Ástæðan fyrir því eru sterkir fyrirvarasamdrættir sem hafa verið að eiga sér stað núna í nokkrar vikur. Spáið í það að vera með það sterka fyrirvarasamdrætti að þú færð útvíkkun, getur ekki verið gott. Eg vona bara svo innilega mömmu vegna og mín vegna (hlakka svo til að sjá litlu telpuna) að hún fæði í kvöld eða á morgun. Ef fæðingin verður ekki byrjuð fyrir lok morgundagsins verður hún sett af stað.

Jæja, núna ætla ég að fá mér að borða. Hafið það sem allra best!

Kv. Saranda.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 18:50:25 / saranda

Ættarmót baby!!

Sæl öllsömul! :) Mikið voðalega er veðrið búið að vera gott síðastliðna tvo daga og vinnan einnig einkar skemmtileg. Ástæðan fyrir skemmtilegum vinnudögum er ákaflega skemmtilegt fólk og svo virðast gott veður og lítið að gera fylgjast vel að þannig að í gær fengum við extra langa matar- og kaffitíma og settum við upp blaktjald og fórum í blak og síðan sólbað eftir það. Í dag fengum við síðan líka að vera lengur í matnum og kaffinu þannig að það var aftur haldið út og í þetta skiptið fórum við í þennan hörku vatnsslag sem ég er öll út í grasgrænku eftir. Já, vinnan mín er sko skemmtileg!! :) Á morgun er ég svo í fríi og er áætlunin að halda á ættarmót nálægt Húsavík, nánar tiltekið í Ljósvetningabúð. Við Hannes þór ætlum að leggja snemma af stað og stoppa kannski svolítið við á Akureyri og fá okkur Brynjuís, maður má náttúrulega ekki sleppa besta ís í heimi þegar maður kemst í nánd við hann. Síðan ætlum við að keyra á áfangastað og tjalda þessu massa tjaldi sem við tökum með okkur, svolítið stórt tjald (vonandi gengur betur að tjalda því en tjaldinu sem tekið var með sér til Akureyrar um síðustu verzlunarmannahelgi :) ) En ég ætla að drífa mig í sturtu, er að fara á kaffihús með sænskum vinnufélaga mínum sem heitir Gunilla. Chao belles!!

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 16:36:13 / saranda

Vinna og vinna...

Sæl öllsömul! :)

Núna hafa 18 vinnudagar verið teknir í röð og geri aðrir betur! Ég hef sem sagt góða ástæðu fyrir letiblogginu. Það er annars allt fint að frétta af mér. Heilsan góð og lítill tími verið tekinn í að djamma upp á síðkastið, hún Carissa sá alveg um að klára djammkvótann minn næsti vikurnar.

En er í vinnunni eins og er þannig að þetta verður ekki lengra í bili.

Chao!! ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 23:17:41 / saranda

Sumarfrí og fínerí.

Jæja, mér fannst vera kominn tími á smá færslu þar sem allt of langur tími er liðinn frá þeirri síðustu. Af mér er samt ekki mikið að frétta. Ég er aðallega búin að vera að vinna og hafa núna 9 dagar í röð verið teknir í vinnu á tveimur stöðum, Vistor (lyfjafyrirtækið) og hestaleigan Laxnes, já Didda er svolítið busy. Þarsíðasta helgi var aðallega tekin í djamm. Carissa, frænka mín frá Svíþjóð, var þá í heimsókn og gat maður náttúrulega ekki sleppt því að kynna henni fyrir almennu íslensku djammi, sem hún by the way fílaði í botn. ;) Á laugardeginum fórum við út með frænda okkar honum Birni Þorláki sem er algert æði. Hann sá um að passa okkur fyrir óæskilegum karlhormónum sem var mjög fínt og svo vill einnig til að hann er einkar skemmtilegur og vinir hans einnig þannig að kvöldið var mjög skemmtiegt. Þakka bara fyirr mig! :)

Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

Bisous (bless á frönsku).


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 26942
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 26 apríl
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti